Gullið, Djollíið, Hlybbinn og frv. Krullið

Já komiði sæl þetta er síða sem okkur strákunum datt í hug að setja upp til þess að við gætum bloggað frá báðum stöðum, sagt frá því sem er að gerast í þjóðfélagslífinu og rífast svo um það, nei bara djók við munum bara gera ykkur góðan dag. Cool

mánudagur, júní 30, 2003

Frakkland vann úrslitaleikinn í gær þegar Henry aðalkúlistinn skoraði á 97. mínútu. Kamerún hefði nú samt átt að vinna þetta finnst mér. Sjáumst,
Jolli.

sunnudagur, júní 29, 2003

Hæhæ! Jói hérna mættur. Að prófa að gera þetta. Úrslitaleikur Álfukeppninnar er búinn og fór hann 0-0 eftir 90 mín. og það verður framlenging og nú er bara að vona að Kamerún taki þetta. Jæja sjáumst síðar. Jói
Jæjhaa!!! Skúli hér. Við jolli erum búnir að vera hér að puða eða öllu heldur Jolli við að gera síðuna betri. En allaveganna úrslitaleikur álfukeppninnar er í gangi 0-0 í hálfleik sjáumst síðar. bless bless
Blessuð. Loksins komin komment og gestabók og eitthvað. En allavegana ég segi bara gott og blogga bara meira á morgun nenni ekki neinu núna. Sjáumst
Jolli.

þriðjudagur, júní 24, 2003

Jæja. Á marr ekki að segja eitthvað frá Mósó eða eitthvað svoleiðis? Nenni því samt varla þannig að ég geri það bara seinna. Annars segir mar bara allt fínt sko. Sjáumst,
Jolli.

mánudagur, júní 09, 2003

Jæja! Þá er þetta komið. Þetta er bara svona test en hér verður rifist um margt í­ þjóðfélagslífinu og fleira, nei nei segji svona, en allaveganna. Við ætlum að reyna að blogga á hverjum degi.
St. Anger kom út á Íslandi á föstudaginn og hef ég nælt mér í­ eintak af disknum verð bara að segja að diskurinn er hreinasta snilld þeir eru bara komnir aftur í­ tímann með "old school" þungarokkið ef einhver er sammála mér eða á móti þá er honum frjálst að tjá sig hér. Takk fyrir Skúli